Heildarlausnir

í frárennslislögnum, skólpviðgerðum, stíflulosun, lagnahreinsun, myndatöku og viðgerðum

Um okkur

Gildi Verkvals

Verkval ehf starfar með viðskiptavinum sínum af vinsemd og virðingu og starfsmenn fyrirtækisins starfa eftir gildunum.

Þjónusta | Samvinna | Lausnir

Verkval

Verkval ehf er einkarekið fyrirtæki sem stofnað var á Akureyri 1987 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu alla tíð síðan. Fyrirtækið hefur þróast í tímans rás og safnað að sér mikilli reynslu, þekkingu og viðskiptavild. Það þjónustar nú fjölda sveitarfélaga og fyrirtækja, um allt norður- og vesturland auk þess að þjónusta sveitarfélög á suðurlandi auk Veitna á Akranesi og Borgarnesi.

Áherslur fyrirtækisins í dag er rekstur öflugra dælubíla sem annast hvers kyns dæluvinnu, holræsahreinsun, rotþróahreinsun, stíflulosun og önnur sérhæfð verk svo sem tankahreinsun, skipaþjónustu, rótarskurð og lagnafræsingu. Lagnahópur fyrirtækisins hefur yfir að ráða tveimur gröfum og tækjum til lagnamyndunar, staðsetningar lagnabilunar auk búnaðar til að saga steypu og malbik og brjóta veggi. Til stendur að bæta lagnafóðrun við þjónustuna innan tíðar og þá opnast nýjir möguleikar til lagnaviðgerða eldri húsa með lágmarksraski.

Fyrirtækið starfar í eigin húsnæði að Miðhúsavegi 4 á Akureyri og hefur á að skipa harðsnúnu liði starfsmanna sem ganga í þau verk sem vinna þarf með samvinnu og þjónustulund að leiðarljósi. Það má leita til okkar hvenær sem er sólarhringsins, árið um kring.

Símar fyrirtækisins eru 892-3762, vaktsími, 858-5588, framkvæmdastjóri og 852-5588, verkstjóri. Netfangið er verkval@verkval.is

Bílar og tæki

Verkval hefur í flota sínum 5 dælubíla, þar af þrjá mjög öfluga holræsabíla auk tveggja rotþróabíla en allir bílar geta annast stíflulosun og hvers kyns almenn verkefni. 

Tveir bílar eru sérhæfðir rotþróabílar með skiljubúnaði sem skilur vatnið frá úrgangi þróarinnar og skilar því til baka í þróna. Slíkt gagnast vel sveitarfélögum og sparar akstur og tíma. Þriðji bíllinn af þessari gerð er tiltækur sem varabíll.  Við þjónustum nú þegar allmörg sveitarfélög víðsvegar um landið og höfum góða reynslu á þessu sviði.

Meðal annara tækja má nefna tvær gröfur til minni og miðlungs stórra frárennslisverka, múrbrjót, loftpressu og steypusög ef brjóta þarf gólf eða vegg, auk margra fleiri tækja svo sem færanlega öfluga rafstöð, bensínvatnsdæla og kjarnaborvél.

Myndavélar eru lykilatriði í greiningu lagnaskemmda. Verkval ehf á breitt úrval lagnamyndavéla allt frá 28 mm vél sem myndar minni innanhúslagnir, 56 mm vélar sem mynda skólplagnir innanhúss og út í götu auk mun stærri véla sem mynda götulagnir fyrir sveitarfélög. Verkval ehf á tvo myndavélabíla sem annast götulagnir. Um er að ræða skriðdreka sem mynda lagnir frá 200 mm upp í 1200 mm og geta myndað allt að 30 metra inn í hliðarlagnir. Hægt er að staðsetja og hnitasetja allar lagnir og veika punkta þeirra og skila nákvæmum myndrænum skýrslum um ástand lagna. Við getum auk þess teiknað lagnakerfi upp í kortasjár sveitarfélaga.

Starfsfólk

Gunnar Rafn Jónsson, stjórnarformaður og eigandi
Jónas Halldór Sigurðsson, framkvæmda- og fjármálastjóri
Jón Árni Garðarsson, bílstjóri og tækjamaður (verksstjóri)
Björgvin Árnason, bílstjóri og tækjamaður (gagnaumsýsla)
Dzmitry Vitkouski, bílstjóri og tækjamaður
Robert Bystrek, bílstjóri og tækjamaður
Auðunn Þórarinsson, lagnamyndun og tæknimaður
Andri Bergsteinn verkstæðisformaður og tæknimaður
Eyjólfur G Hallgrímsson vélamaður og bílstjóri

Baldvin Jónsson, lagnamyndun og stíflur

Sumarstafsmenn og aðrir koma glaðir að þjónustu